Vika 21 - TOP 10 Raða eftir flestum km á hlaupum Raða eftir flestum km á hjóli Raða eftir flestum km á sundi Raða eftir samtölu = hlaup + ganga + (0,33·hjól) + (4,5·sund) + (0,8·skíðaganga) + (0,6·hjólaskíði) + (0,5·línuskautar) + (1,2·róður) Samanlagður æfingatími
 -  Nafn Hlaup Hjól  Sund  Sam  klst 
     Arna Ásmundardóttir 25,2 25,2  2:42 
     Sigurður Ingvarsson 23,6 3,5  24,8  2:27 
     Freyr Karlsson 23,1 23,1  1:46 
     Birgir Sævarsson 21,0 21,0  1:38 
     Gunnlaugur Júlíusson 20,0 8,0  22,7 
     Christine Buchholz 18,0 18,0  2:00 
     Sigrún Óskarsdóttir 18,0 18,0  2:03 
     Benedikt Sig. 16,5 16,5 
     Guðmundur S. Ólafsson 16,0 16,0  1:45 
     Rúna Hauksdóttir Hvannberg 15,7 15,7  1:35 
 Lið - TOP 10 maí
 Lið  2-9  Sum Fél. km 
 IP liðar 725,1 3 241,7 
 Asics liðið 1.761,6 8 220,2 
 EAS - liðið 398,6 2 199,3 
 Tri-Nord 356,0 2 178,0 
 Strandamenn-Laugavegur 2012 349,0 2 174,5 
 Glennur 293,9 2 146,9 
 mfbm.is 288,9 2 144,5 
 Skokkhópur Álftaness 515,0 4 128,7 
 CCC, TDS og UTMB 2012 1.029,3 8 128,7 
 Hlaupa- og lífstílshópurinn 254,3 2 127,1 
 Hópar - TOP 10 maí
 Hópur  10+  Sum Fél. km 
 ÍR Hlaup 3.559,0 28 127,1 
 FI SKOKK 2.373,5 19 124,9 
 HAUKAR-Laugavegur 2012 1.598,7 13 123,0 
 ÍR Skokk 4.485,2 37 121,2 
 KR-skokk 1.418,3 12 118,2 
 Hlaupasamtök Lýðveldisins 2.783,0 25 111,3 
 Valur Skokk 2.371,1 24 98,8 
 Skokkhópur Garðabæjar 2.206,5 23 95,9 
 Frankfurt 2012 1.224,9 13 94,2 
 Afrekshópur / Ármann 5.623,1 60 93,7 
TILKYNNINGAR

Tímar Íslendinga í Kaupmannahafnar maraþoni

Hér að neðan má sjá alla tíma Íslendinga frá Kaupmannahafnarmaraþoninu 20.maí.

Sjá nánar - smellið hér. Stefán Thordarson 21.05.2012

Interval þjálfun - fyrirlestur Framfara- Dr. Sigurbjörn Árni


Miðvikudaginn 23.maí kl.20 munu Framfarir- hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara standa fyrir fyrirlestri um áhrif intervalþjálfunar.  Enginn annar en Sigurbjörn Árni Arngrímsson, doktor í lífeðlisfræði mun stíga á stokk og fræða okkur um þetta mikilvæga efni.  Sjálfur er hann margfaldur Íslandsmeistari í hlaupum og hagyrðingur mikill.

Aðgangseyrir er 1000 kr og rennur hann óskiptur til Framfara.  

Staður: Húsakynni ÍSÍ við Engjateig.  Allir velkomnir!


 
 Þórunn Rakel Gylfadóttir 21.05.2012

Valshlaupið verður miðvikudaginn 23. maí og hefst kl. 19:00.

Brautin er tilvalin til bætinga. 

Verð hagsýn og forskráið ykkur hér eða í Valsheimilinu þriðjudaginn 22. maí frá kl 17:30-20:00.

Sjáumst á Hlíðarenda

 Gísli Vilberg Hjaltason 20.05.2012

COMPRESSPORT® – Þríþrautin 3. júní

3SH hefur opnað fyrir skráningu í COMPRESSPORT® – Þríþrautina.

Synt verður í Ásvallalaug (750m), hjólað á Krísuvíkurvegi (20km einn hringur) og hlaupið um Vallarhverfið (5km einn hringur).

Keppt verður í tveimur aldursflokkum og veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin, aldursskipting er eftirfarandi:
  • 18 til 39 ára karla- og kvennaflokkur
  • 40 + karla- og kvennaflokkur

Verðlaun eru veitt fyrir besta tíma í karla- og kvennaflokki. 

Nánari uppl. um þrautina má finna á heimasíðu 3SH, www.3sh.is.

Skráning hér

 

 Sunna Björg Helgadóttir 20.05.2012

Copenhagen Marathon 20.maí

Í mikilli veðurblíðu stendur Kaupmannahafnarmaraþonið nú yfir. 
Fjöldi þátttakenda hefur vaxið mikið á síðustu árum, í dag eru 12.300 skráðir til leiks
og þar á meðal nokkrir Íslendingar.  

Á meðal þeirra er félagi Stefan Gudmundsson, sem var að koma í mark á glæsilegum
tíma 2:45:45. Stefan er á heimavelli hér og við óskum honum til hamingju með nýtt
persónulegt met - 10 mínútna bæting.

Hægt er fylgjast með hlaupinu í beinni útsendingu  hér.

 Stefán Thordarson 20.05.2012

Miðnæturhlaup til styrktar Kára Steini Karlssyni kl. 24.00 að miðnætti föstudagsins 25. maí í Elliðaárdal. Árbæjarsundlaug opnar kl. 23.30 og er opin til kl. 01.30 um nóttina. Miðnæturhlaup Elliðaárdalur parkrun.

 

Upplýsingar á Facebook: MidnaeturhlaupEllidaardalurParkrun

 Smári Jósafatsson 19.05.2012

Stjörnuhlaupið í Garðabæ  23.maí kl.18  
Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar í samstarfi við íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar (ÍTG) stendur fyrir almenningshlaupi í útivistarparadís Garðabæjar við Vífilsstaðavatn. Markmiðið er að bjóða öllum almenningi í Garðabæ og nágrenni að taka þátt í hollri og góðri hreyfingu í fallegu umhverfi.

Skráningar fara fram hér eða 2 tímum fyrir hlaup við Vífilsstaði kl. 16:00.

Sjá nánar - smellið hér. Almenningsíþróttanefnd Stjörnunnar og ÍTG 18.05.2012

Úrslit í Fjölnishlaupinu hafa verið birt í 10 km  hér á hlaup.com og á heimasíðu Fjölnis í 1,4 km skemmtiskokki auk stuttrar fréttatilkynningar.

Myndir úr 10 km hlaupinu teknar af Birni Ingvarssyni má finna hér

Frjálsíþróttadeild Fjölnis þakkar fyrir þátttökuna og góðan dag í Grafarvoginum Smile

 Sigríður Klara Böðvarsdóttir 13.05.2012

Úrslit úr Kópavogsþríþraut 2012

Þátttakendamet var sett í þríþraut á Íslandi þegar 98 manns kláruðu Kópavogsþríþrautina í dag. Veður var með ágætum þrátt fyrir bleytu á brautinni. Fyrst kvenna var Birna Björnsdóttir á tímanum 38:24 sem er brautarmet kvenna. Fyrstur karla var Stefán Guðmundsson sem lauk þrautinni á 35:16 en þau keppa bæði fyrir 3SH. Þríkó þakkar öllum þátttakendum og styrktaraðilum fyrir frábæran dag.

Heildarúrslit eru hér

 Þríkó 12.05.2012

Tímatökukeppni miðvikudaginn 16. maí

Hjólamenn halda 20 km tímatökukeppni á Krýsuvíkurmalbikinu miðvikudaginn 16. maí kl. 19.  Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 15. maí kl. 18.  Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Hjólamanna: www.hjolamenn.is

 Sigurgeir Agnarsson 12.05.2012

Valur skokk leitar að þjálfara 

Við erum enn að leita eftir einstaklingi til að pína okkur áfram og passa uppá þá sem styttra eru komnir. Einnig kemur til greina að ráða þjálfara sem heldur aðallega utanum þá síðarnefndu.

Hafir þú spurningar og áhuga á þjálfun hópsins þá er netfangið gislivh@gmail.com. Nánari útfærsla er samkomulagsatriði. 

Sjá nánar - smellið hér. Gísli Vilberg Hjaltason 12.05.2012
17.05.2012 - Breiðholtshlaup Leiknis

Staður og tímasetning
Breiðholtshlaupið verður nú haldið í tuttugasta sinn fimmtudaginn 17. maí nk. Hlaupið hefst kl. 13:00 við Leiknishúsið, Austurbergi 1.

Vegalengdir
2 km skemmtiskokk án tímatöku og flokkaskiptingar, 5 km og 10 km með tímatöku.

Sjá nánar - smellið hér. Magnús Gunnarsson 11.05.2012

3-þraut á Hrafnagili aflýst.

Sökum afleitrar veðurspár hefur verið ákveðið að fella niður fyrirhugaða 3-þraut á Hrafnagili 13. maí næstkomandi. Stefnt er á að halda þraut með haustinu.

 Helga Árnadóttir 10.05.2012

Fjölskylduþríþraut Kópavogs í boði Tri.is og Þríkó

Tri.is og Þríkó bjóða upp á fjölskylduþríþraut þann 12. maí við Kópavogslaug og hefst keppnin klukkan 13:00. Keppnin er einstaklingskeppni fyrir 12 til 16 ára eða liðakeppni þar sem fjölskyldur skipta með sér greinunum. Vegalengdir eru 200m sund, 5km hjól og 1,5km hlaup. Notast verður við rafrænt tímatökukerfi. Ekkert þáttökugjald en fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Nánari upplýsingar og skráningu má finna á síðu Þíkó hér

Allir áhugasamir um þríþraut mætum og höfum gaman og kynnum íþróttina fyrir unga fólkinu.

Bendum á að nú eru aðeins örfá pláss laus í Kópavogsþríþrautina sem haldin verður sama dag klukkan 9:00.

 Þríkó 04.05.2012

Smá uppdate: Það eru hraðastjórar fyrir 03:10:00(04:30) en ekki lengur fyrir 03:15:00. En þar sem við Íslendingar ráðum okkur sjálfir mæli ég eindregið með því að við gerum þetta sjálir erum orðnir 4-5 sem ætulm að halda hópinn. ÍSLAND BEST Í HEIMI

 Pétur Ívarsson 04.05.2012
 
      KEPPNIR     (næsta og síðasta vika)
        UMRÆÐUR Setja inn 
      KAUP og SALA Setja inn 
      RÁÐGJÖF            Sjá ráðgjafasíðuna Setja inn 
      SÖGURSetja inn sögu 
      NÝJUSTU FÉLAGARNIR     (4133)


Samskipti á hlaup.com :
  • Tilkynningar: allir félagar geta skrifað inn tilkynningar á forsíðu hlaup.com. Aðallega hugsað fyrir hlaupshaldara til að miðla upplýs. um íþróttaviðburði / afrek, fundarhöld, forskráningar, úrslit og þess háttar.
  • Umræðusvæðið:  smellið hér
  • SHOUT!: innskráðir félagar geta skrifað í SHOUT-boxinn (hraðspjallið)
  • Skeyti : hægt að senda skeyti til annarra félaga í gegnum kerfið
  • Comment á æfingar/keppnir annara félaga
  •    Leiðbeiningar
  •    Senda tölvupóst til hlaup.com

   Sjá eldri tilkynningar